Listamaðurinn
Laufey Jensdóttir er fædd í Reykjavík 1961 en uppalin í Dalasýslu. Hún útskrifaðist með B.A. gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands 2002 og Diplómapróf í kennslufræði (art education) 2003 frá sama skóla. Auk þessa stundaði hún nám á Myndlistabrautvið Fjölbrautaskólann í Breiðholti 1997 - 1999, Myndlistaskóla Kópavogs 1998 – 1999 og aftur 2007-2008, lærði Tækniteiknun við Iðnskólann í Reykjavík 1982 – 1983 eftir að hafa lokið stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Sund 1982.
Laufey hefur sérhæft sig í leirlist en aðrir miðlar eru henni einnig hugfólgnir. Í verkum sínum hefur hún einbeitt sér að því að láta fjölbreytileikann vera ríkjandi auk þess að “leggja á borð” hugrenningar sínar á málefnum líðandi stundar. Hráleiki efnisins, óregla, magn og mergð ásamt því að tefla saman ólíkum efnum, vera pínulítið væmin og ögrandi er eitthvað sem jafnframt er vert að kljást við í hennar huga.
Laufey hefur verið frumkvöðull að grasrótarstarfi myndlistarmanna í sínum heimabæ Garðabæ. Árið 2009 var hún útnefnd Bæjarlistamaður Garðabæjar.
Hún starfar sem myndlistarkennari við Rimaskóla í Reykjavík og starfrækir vinnustofu að Garðatorgi 1, Garðabæ. Laufey er meðlimur í listhópnum Glóandi og einn af stofnendum Grósku, samtökum myndlistar- og áhugafólks um myndlist í Garðabæ og á Álftanesi og er formaður félagsins frá vordögum 2016. Laufey er einnig meðlimur í Art67 hópnum, sem rekur listagallery að Laugavegi 67 í Reykjavík